flugfréttir
Atlanta kaupir Boeing 747 flughermi af British Airways
Flugherminn mun Air Atlanta Icelandic nota fyrir þjálfun flugmanna á Boeing 747-400 þoturnar auk þess sem hann verður einnig leigður út
Íslenska flugfélagið Air Atlanta Icelandic hefur fest kaup á Boeing 747-400 flughermi frá British Airways þar sem flugfélagið breska hefur hætt með júmbó-þoturnar og fjarlægt þær úr flota sínum.
Flughermirinn verður áfram staðsettur í húsakynnum flugþjálfunasetursins British Airways
Global Learning Academy í London og stendur öðrum flugfélögum til boða að taka flugherminn
á leigu.
„Með kaupunum á Boeing 747-400 flugherminum þá hlakkar okkur hjá Air Atlanta Icelandic til þess
að auka enn frekar okkar frábæra samstarf við British Airways“, segir Baldvin Már Hermannsson,
framkvæmdarstjóri Air Atlanta.
Air Atlanta Icelandic hefur fjórar Boeing 747-400 fraktþotur í notkun en þá hefur félagið
einnig fjórar farþegaútgáfur af 747-400 þotunni sem er í tímabundinni geymslu en heildarfjöldi
flugflota félagsins telur þrettán júmbó-þotur og eina Airbus A340-300 breiðþotu.
British Airways hefur fjóra Boeing 747-400 flugherma við þjálfunarsetur félagsins en British
Airways ákvað í apríl í fyrra að hætta með júmbó-þoturnar í kjölfar heimsfaraldursins, fjórum árum
áður en til stóð að taka þoturnar úr umferð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.