flugfréttir

Bjørn Kjos stofnar nýtt flugfélag sem mun fljúga yfir Atlantshafið

- Norse Atlantic Airways mun hefja starfsemi sína í desember

15. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 20:14

Bjørn Kjos, sem stofnaði Norwegian árið 1993, er stofnandi nýja flugfélagsins, Norse Atlantic Airways

Nýtt norskt flugfélag stefnir á að hefja starfsemi sína síðar á þessu ári og ætlar félagið meðal annars að bjóða upp á flug yfir Atlantshafið til Norður-Ameríku og fylla í það skarð sem Norwegian skilur eftir sig á þeim markaði.

Nýja flugfélagið heitir Norse Atlantic Airways en stofnandi þess er engin annar en Bjørn Kjos sem stofnaði Norwegian árið 1993 en hann hætti sem framkvæmdarstjóri yfir flugfélaginu norska árið 2019.

Kjos mun eiga 15 prósenta hlut í Norse Atlantic Airways en félagið verður að 53 prósent hluta til í eigu Bjorn Tore Larsen sem var einn af stofnendum norska flugfyrirtækisins OSM Aviation en það fyrirtæki mun eiga 10% í nýja flugfélaginu og þá mun Espen Hoiby, framkvæmdarstjóri hjá OSM, Avaition verða fjármálastjóri nýja flugfélagsins.

Taka á leigu Dreamliner-þoturnar sem Norwegian skilaði

Í yfirlýsingu frá Bjorn Tore Larsen segir að nýja flugfélagið sé búið að tryggja sér ótilgreindan fjölda af Dreamliner-þotum á „góðum kjörum“ og ætlar Norse Atlantic Airways að hefja flug til áfangastaða í Bandaríkjunum á borð við New York, Los Angeles og Miami og verður flogið frá London, Osló og París til að byrja með.

Larsen tekur fram að félagið eigi í viðræðum við flugvélaleigur um leigu á þeim Dreamliner-þotum sem Norwegian hefur skilað aftur til eigenda sinna en Norse Atlantic Airways stefnir á að hafa eingöngu Boeing 787 þotur í flotanum.

Stjórn Norse Atlantic Airways samanstendur af stjórnarformönnum frá Norwegian og OSM Aviation

Nú þegar er búið að semja um leigu á níu Dreamliner-þotum og standa yfir viðræður um leigu á þremur til viðbótar og myndi félagið því koma til með að hafa þriðjunginn af þeim fjölda Dreamliner-þotna sem Norwegian hafði.

OSM Aviation hefur þegar auglýst eftir starfsfólki og ætlar félagið að byrja á því að ráða flugfreyjur og flugþjóna en til stendur að áætlunarflug hefjist fyrir desember á þessu ári.

Norwegian tilkynnti um miðjan janúar að félagið ætlaði sér ekki að byrja að fljúga aftur til Norður-Ameríku og ætlaði félagið þess í stað að einblína á innanlandsflug í Skandinavíu og til lykiláfangastaða í Evrópu.

Norwegian hafði 35 Dreamliner-þotur í flotanum sem voru bæði af gerðinni Boeing 787-8 og Boeing 787-9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga