flugfréttir
BA staðráðið í að hefja aftur flug með Airbus A380
Airbus A380 risaþota frá British Airways
Framkvæmdarstjóri British Airways hefur lýst því yfir að Airbus A380 risaþotur félagsins munu snúa aftur og sé því engar efasemdir um hvort þær eigi eftir að fljúga aftur eftir að heimsfaraldurinn er yfirstaðinn.
Sean Doyle, framkvæmdarstjóri British Airways, segir að félagið mun ekki bætast í hóp
flugfélaga á borð við Lufthansa, Air France, og mögulega Etihad Airways, sem öll hafa tilkynnt
að þau sjá ekki fram á endurkoma risaþotnanna.
„Airbus A380 risaþoturnar okkar er ekki að fljúga eins og er en við gerum ráð fyrir þeim
í framtíðaráformum okkar. Nákvæmlega hvenær þær fara aftu í notkun er eitthvað
sem er ekki víst eins og er“, segir Doyle.
Hinsvegar gæti svo farið að risaþotur British Airways eigi ekki eftir að hefja sig til flugs
með farþega frá Heathrow-flugvellinum í London fyrr en árið 2023 eða 2024.
„Það mun taka þrjú til fjögur ár fyrir eftirspurnina að verða þá sömu og hún var árið 2019. Ég
ætla að giska á 2023 til 2024“, segir Doyle í viðtali við breska dagblaðið The Independent.
Doyle gerir ráð fyrir því að fyrsta eftirspurnin verði meðal farþega sem eru ekki að ferðast
í viðskiptaerindum og á hann þá við þá sem eru í að fara í fríið eða til þess að heimsækja vini
og fjölskyldur.
„Þegar þú átt í viðskiptum þá áttu í samskiptum við fólk en ekki fyrirtækið sjálft og það að
geta átt í samskiptum augliti til auglitis mun koma aftur tl baka“, segir Doyle og tekur
fram að nú þegar er farið að bera á þreytu meðal starfsmanna að vera heima og eiga símafundi
í stað þess að ferðast með flugi til að hitta aðila vegna viðskipta.
Áður en heimsfaraldurinn skall á þá notaði British Airways Airbus A380 risaþoturnar sínar í flugi til áfangastaða í Norður- Ameríku á borð við Los Angeles, San Francisco, Chicago, Boston, Washington og Vancouver auk þess sem risaþoturnar flugu til Singapore, Hong Kong og til
Jóhannesarborgar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.