flugfréttir
Rifrildi milli flugmanns og flugþjóns varð að slagsmálum
- Kínversk flugmálayfirvöld setja takmarkanir á starfsemi Donghai Airlines
Boeing 737 þota frá Donghai Airlines
Flugmálayfivöld í Kína hafa meinað kínverska flugfélaginu Donghai Airlines að bæta við sig tíðni né fjölga áfangastöðum í kjölfar atviks eftir að slagsmál brutust út meðal tveggja áhafnarmeðlima.
Atvikið átti sér stað þann 20. febrúar sl. um borð í flugi milli kínversku borganna Nantong og Xian
og var um að ræða slagsmál á milli flugmanns og flugþjóns.
Að sögn kínverskra fjölmiðla þá hafði flugmaðurinn gert athugsemdir við starfshætti meðal yfirflugþjónsins
og sakað hann um að hafa ekki gripið í taumana þegar einn farþegi reyndi að komast inn á salernið um borð á meðan
flugmaðurinn var að nota salernið.
Fram kemur að af öryggisástæðum þá þurfi áhöfnin að gæta þess að engir farþegar séu nálægt salerninu á meðan flugmennirnir
eru að nota það.
Upp hófst rifrildi meðal flugmannsins og yfirflugþjónsins um borð sem endaði með því að annar flugliði skarst í leikinn
og kom til handalögmála sem varð til þess að flugmaðurinn og flugþjónninn hlutu meiðsli af.
Slagsmálin náðust á myndband og var því dreift á kínverskum samfélagsmiðlum í mars sem endaði með því að atvikið
endaði inni á borði hjá flugmálayfirvöldum sem hófu rannsókn á því.
Eftir stutta rannsókn tilkynntu kínversk flugmálayfirvöld að flugmaðurinn yrði sviptu réttindum sínum tímabundið auk
þess sem flugþjóninn og fleiri í áhöfn vélarinnar fá ekki að starfa lengur í háloftunum í bili.
Þá hafa nokkrir stjórnarmeðlimir hjá Donghai Airlines verið reknir og einhverjir eiga von á sektum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.