flugfréttir
Norskt flugfélag ætlar að ráða 50 flugmenn á Boeing 737
Flyr stefnir á að hefja áætlunarflug í sumar
Nýja norska flugfélagið Flyr hefur hafið leit að flugmönnum en flugfélagið áætlar að hefja áætlunarflug á næstunni.
Það er flugfyrirtækið OSM Aviation sem sér um ráðningarferlið fyrir hönd Flyr og er leitað að flugstjórum til að byrja með
sem munu fljúga þotum af gerðinni Boeing 737 Next Generation (NG) og er farið fram á að þeir hafi nú þegar
tegundaráritun á 737NG í gildi.
Það var í október í fyrra sem að tilkynnt var um nýja flugfélagið auk þess sem nafnið Flyr var kynnt til sögunnar
en flugfélagið ætlar að ráða flugmenn sem eru staðsettir í Osló og verða um 50 flugmenn ráðnir til að byrja með.
Flyr ætlar að byrja með átta þotur af gerðinni Boeing 737-800 en til stendur að flotinn verði komin upp í 28 þotur
eftir nokkur ár.
Þær kröfur sem farið er fram á eru að umsækjandi hafi að minnsta kosti 1.000 tíma sem flugstjóri á Boeing 737NG,
heildarflugtíma upp á að minnsta kosti 5.000 tíma, hafi tegundaráritun á Boeing 737NG í gildi, hreint
sakarvottorð, fluglæknavottorð í gildi af gerðinni Class 1 og skírteini gefið út af EASA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.