flugfréttir
Síðasta Airbus A380 risaþotan yfirgefur Toulouse
Síðasta Airbus A380 risaþotan sem smíðuð hefur verið tók lágflug og vængjavagg eftir flugtak frá Toulouse í gær
Síðasta Airbus A380 risaþotan sem smíðuð hefur verið hefur yfirgefið verksmiðjur Airbus í Toulouse en þotan verður á næstunni afhent til Emirates.
Þotan er númer 272 í röðunni sem smíðuð hefur verið frá upphafi frá því framleiðslan hófst árið 2005 og fór
hún í loftið í gær frá Toulouse og verða því ekki fleiri A380 þotur sem munu hefja sig á loft frá verksmiðjunum
eftir samsetningu fyrir utan þær sem enn á eftir að afhenda.
Þotan fór í sitt fyrsta tilraunaflug og lenti þremur tímum síðar í Hamborg þar sem hún verður máluð í litum Emirates
auk þess sem að farþegarými verður komið fyrir um borð og þá verða framkvæmdar síðustu prófanir á tækjum og búnaði áður en þotan verður afhent.
Enn á þó eftir að afhenda fimm Airbus A380 risaþotur til Emirates og verða tvær afhentar á þessu ári og þrjár síðustu
árið 2022.
Það var árið 2019 sem að Airbus tók þá ákvörðun að hætta framleiðslu risaþotunnar eftir að Emirates ákvað að fækka
þeim risaþotum sem flugfélagið hafði pantað um 39 risaþotur.
Síðasta risaþotan tók lágflug og vængjavagg eftir flugtak frá Toulouse í gær:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.