flugfréttir

Flugkennarar taka þátt í Mottumars til heiðurs nemanda

- Safna áheitum til styrktar Sóleyju Björgu

18. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:37

Flugkennarar og Sóley Björg í myndatöku fyrir átakið í flugskýli Flugakademíu Íslands á Keflavíkurflugvelli

Hópur af flugkennurum við Flugakademíu Íslands hefur skráð sig til þátttöku í Mottumars í ár en hópurinn hefur sett sér það markmið að safna 200.000 kr til heiðurs flugnema sem háir nú baráttuna við krabbamein.

Á áheitasíðu hópsins segir: “Sóley Björg útskrifaðist nýlega úr flugkennaranámi við Flugakademíu Íslands með frábærum árangri eftir að hafa flogið í gegnum atvinnuflugmannsnámið okkar.

Hún Sóley kallar alls ekki allt ömmu sína og býr yfir alveg ótrúlegum styrk og elju. Um það leiti sem hún lauk flugkennaranáminu ákvað lífið að leggja fyrir hana erfiða áskorun - brjóstakrabbamein. Eins og hún orðar það þá er það bara "verkefni til að ljúka - áfram gakk!".

Við erum hópur af flugkennurum sem hafa fylgt Sóley í gegnum námið og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að standa að baki þessari öflugu konu og leggja baráttunni gegn krabbameini lið.

Okkur þætti það ómetanlegt ef þið mynduð styrkja okkur í þessu verkefni - áfram gakk!”

Hópurinn hefur nú þegar safnað 60.000 kr. og segir Þórarinn Ólafsson, þjálfunarstjóri verklegrar deildar þau rétt að byrja. - "Það má segja að frá degi eitt í flugnáminu hafi jákvæðni og elja verið einkennandi fyrir hana Sóleyju Björgu og orðin „Áfram gakk!“.

Eftir þær fréttir sem við fengum af greiningu Sóleyjar og var ekki annað hægt en að fá alla þá kennara sem hafa komið að náminu hennar til að sýna henni allan þann stuðning sem við getum veitt. Fyrst áttu það að vera mottur, svo komu bleiku bindin þannig nú má segja „Bleik bindi, mottur og áfram gakk!“ Við stöndum með þér Sóley alla leið!"

Hér má smella á slóð sem leiðir beint inn á söfnunina







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga