flugfréttir
Nefhjól féll saman og brotnaði á Airbus A320 þotu
Farþegar yfirgefa Airbus A320 þotuna eftir atvikið í gær
Nefhjólastell féll saman á farþegaþotu af gerðinni Airbus A320 frá mexíkóska flugfélaginu VivaAeroBus er þotan var að undirbúa brottför á flugvellinum í Puerto Vallarta í Mexíkó í gær.
Þotan var að aka að flugbrautarenda og var að taka 180 gráðu beygju við enda brautarinnar
þegar nefhjólið féll saman og brotnuðu dekkin af stellinu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
127 manns voru um borð í þotunni sem var á leið til borgarinnar Monterrey þegar atvikið átti sér stað
og féll nefhluti vélarinnar niður í flugbrautina.
Rýma þurfti flugvélina á brautinni og yfirgáfu farþegar vélina niður um uppblásnar neyðarrennibrautir
Engann sakaði um borð og voru farþegar bókaðir með öðru flugi á leiðarenda en loka þurfti flugvellinum í kjölfar atviksins.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.