flugfréttir
Athuga hvort að galla sé að finna í gluggum á stjórnklefum á 787
Til þess að koma í veg fyrir að upp komi vandamál hefur Boeing ákveðið að framkvæma úttekt á stjórnklefagluggum í tilteknum fjölda af Dreamliner-þotum
Boeing hefur hafist handa við að gera úttekt á gluggum í stjórnklefum á tilteknum fjölda af Dreamliner-þotum sem framleiddar hafa verið til þess að ganga úr skugga um mögulegan galla sem gæti komið fram.
Boeing hefur að undanförnu unnið að því að yfirfara fjölmörg atriði er varðar Boeing 787 þoturnar en reglulega hafa komið fram annmarkar og gallar í framleiðslunni á þotunum sem hefur m.a. seinkað afhendingum.
Haft er eftir tveimur aðilum sem eru kunnugir málinu að Boeing sé nú þegar búið að fresta afhendingum á einhverjum þotum en í ljós kom að fyrirtæki, sem kemur að framleiðslu á íhlutum í rúðurnar í gluggum fyrir stjórnklefa á Boeing 787, breytti starfsháttum við framleiðslu sína í desember í fyrra sem gæti haft áhrif á eiginleika glugganna.
Til þess að koma í veg fyrir að upp komi vandamál hefur Boeing ákveðið að framkvæma úttekt á stjórnklefagluggum á tilteknum fjölda af Dreamliner-þotum til þess að sjá til þess að gluggarnir
uppfylli ströngustu kröfur.
Nú þegar vinna starfsmenn Boeing hörðum höndum að því að laga og fara yfir aðra mögulega galla í von um að hægt verði að hefja afhendingar á ný á Dreamliner-þotunum fyrir lok þessa mánaðar en Boeing hefur ekki afhent neinar Dreamliner-þotur síðan í október í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.