flugfréttir
Síðasta flug China Airlines með Boeing 747
Boeing 747-400 þota frá China Airlines
Taívanska flugfélagið China Airlines hefur bæst í hóp þeirra flugfélaga sem hafa hætt með júmbó-þotuna en félagið flaug sl. laugardag sitt síðasta farþegaflug með Boeing 747.
Síðasta flugið var útsýnisflug sem varði í 5 klukkustundir og 15 mínútur og var flogið frá Taipei í Taívan að
Fiji-eldfjallinu í Japan og til baka.
Júmbó-þotan sem notuð var er merkileg fyrir þær sakir að hún var seinasta Boeing 747-400 þotan sem framleidd
var hjá Boeing í Everett árið 2005 og hefur hún verið í notkun hjá China Airlines í 16 ár.
China Airlines sá til þess að allt snérist um töluna 747 í síðasta júmbó-þotufluginu og opnaði innritunarborð fyrir
útsýnisflugið á slaginu klukkan 7:47 og kostaði farmiðinn á fyrsta farrými til að mynda 9.747 taívanska dali.
Tilkynnt var um fyrirhugað útsýnisflug sem síðasta júmbó-þotuflug félagsins í janúar og stóð til að fljúga flugið þann
6. febrúar en því var hinsvegar frestað þar sem kórónaveirusmitum fór fjölgandi í landinu.
China Airlines hefur fjórar Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum sem allar hafa verið settar á sölu en félagið hefur
einnig 18 júmbó-fraktþotur af gerðinni Boeing 747-400F sem munu sinna áfram vöruflutingaflugi.
China Airlines hefur nú skipt júmbó-þotunum út fyrir þotum af gerðinni Boeing 777-300ER sem taka 358 farþega
í sæti sem er svipaður fjöldi og Boeing 747 þotur félagsins hafa tekið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.