flugfréttir
Ódýari flugvallargjöld fyrir flugfélög sem menga minna
Frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi í Svíþjóð
Stjórnvöld í Svíþjóð ætla sér að breyta verðum á flugvallargjöldum með þeim hætti að þau verði tengd því hversu umhverfisvænt viðkomandi flugfélag er og hversu vel það stendur sig er kemur að kolefnisjöfnun og losun koltvísýrings.
Sænska ríkisstjórnin kynnti þessa tillögu í dag og þýðir það að lendingar- og þjónustugjöld á flugvöllum í Svíþjóð verða lægri fyrir flugvélar
sem menga minna og einnig fyrir þær flugvélar sem notast við lífrænt eldsneyti.
Umhverfistengd flugvallargjöld myndu verða tekin upp á Arlanda-flugvellinum í Svíþjóð og einnig á Landvetter-flugvellinum í Gautaborg og
segir í tilkynningu frá sænsku ríkisstjórninni að þetta væri í fyrsta skipti í heiminum sem þessi aðferð yrði tekin upp.
„Flugiðnaðurinn þarf að fara að sýna fram á árangur er varðar
stefnu í loftlagsbreytingum og með þessari aðferð geta stjórnvöld
sett þrýsting á iðnaðinn til þess að leggja sitt af mörkum“, segir
Per Bolund, umhverfisráðherra Svíþjóðar.
Fram kemur að ríkisstjórn Svíþjóðar myndi setja það í hendurnar á
flugvöllunum sjálfum hvernig þetta fyrirkomulag yrði útfært í smáatriðum
en stjórnvöld munu semja reglugerð varðandi þau flugfélög sem ná ekki
að uppfylla kröfurnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.