flugfréttir
Flugmaður opnar kaffihús með flugtengdu þema í Belfast
- Var byrjaður í þjálfun hjá Qatar Airways þegar COVID-19 skall á
Alexander Torres opnaði flugkaffihúsið Flight 7 í desember í fyrra og hefur reksturinn gengið vel síðan þá
Þeir eru fjölmargir flugmennirnir í heiminum sem hafa misst störf sín og þurft að frá að hverfa úr stjórnklefanum og snúa sér að störfum í öðrum iðnaði vegna heimsfaraldursins.
Meðal þeirra fjölmörgu er hinn 27 ára franski flugmaður Alexander Torres sem býr á Norður-Írlandi en hann
var að stíga sín fyrstu skref sem flugmaður eftir sjö ára flugnám, þjálfun og bið eftir því að komast í hægra sætið þegar faraldurinn dundi yfir.
Alexander hafði verið nýráðinn til Qatar Airways og hafði hann hafið þjálfun og sá fram á að loksins myndi
hann fá borgað fyrir að fljúga farþegum heimsálfa á milli en síðan kom skellurinn sem skall á flesta aðra flugmenn
og starfsmenn í flugiðnaðinum.
Kaffihúsið Flight 7 er að finna í miðborg Belfast
Alexander byrjaði í flugnámi árið 2012 skömmu eftir að heimurinn var farinn að jafna sig eftir efnahagslægðina sem
hófst árið 2008 en Alex hafði fram að því starfað sem flugþjónn í nokkur ár.
Var spurning annaðhvort um að hanga heima eða gera eitthvað að viti
Alexander, sem er frá Belfast, sá hinsvegar fram á þegar kórónuveiran fór að breiðast út að sennilega myndi það ekki
hafa mikil áhrif á Qatar Airways þar sem það félag er stórt og öflugt en það leið ekki langur tími þangað til
að faraldurinn knésetti öll flugfélög með einhverju móti og missti hann starfið sitt hjá Qatar Airways í júlí í fyrra.
„Ég var aftur komin á byrjunarreit eða aftur komin á reit númer 2012. Ég spurði sjálfan mig „Hvað ætlaru að gera? Það
var annaðhvort að hanga heima og gera ekki neitt og lifa á sparnaðarpeningnum og vona að iðnaðurinn
myndi taka við sér - eða nota peninginn til þess að fjárfesta í einhverju“, segir Alexander.
Hvar sem er litið inni á kaffihúsinu er að finna hluti sem tengjast fluginu
Alexander sá fram á að það myndi ekkert fara að lagast neitt nærri því strax í fluginu og kom hann skyndilega upp
með þá hugmynd að opna sitt eigið kaffihús sem hefði flugtengt þema - „Að elda var eitthvað sem ég hafði alltaf
gaman að og þrátt fyrir takmarkanir þá hafa veitingahús gengið með því að bjóða eingöngu upp á veitingar
sem fólk tekur með sér“.
Þessi flugmaður sem starfar ekki við flugið eins og margir í augnablikinu opnaði kaffihúsið Flight 7 í Belfast í
desember 2020 og býður Alexander upp á smákökur, tertur, samlokur, heita drykki og fleira og allt í anda
flugsins - Einnig er hægt að panta matarbakka eins og farþegar fá um borð í flugi í 35.000 fetum og þá
svipar matseðillinn á skiltinu inni á kaffihúsinu til upplýsingaskjánna á flugvöllum sem sýna brottfarartíma og
stöðuna á fluginu.
Skiltin með matseðil og tilboð hefur sömu leturgerð og skilti og upplýsingaskjáir á flugvöllum
Ekki nóg með það þá spilar Alexander hljóð í hátölurum sem svipa til hljóða sem heyra má í flugstöð á stórum
flugvöllum, hljóð af flugvélum að starta upp hreyflunum og tilkynningar til farþega.
Alex segir að Flight 7 kaffihúsið sé nú þegar komið út í hagnað - „Einn af þeim kostum við að vera flugmaður
er eiginleikinn til að meta áhættu sem kemur sér vel í fyrirtækjarekstri. Markmið kaffihússins var að þrauka
í gegnum heimsfaraldurinn og ná nægum tekjum til að halda kaffihúsinu gangandi þannig að rekstaráætlunin
er að virka“, segir Alex sem er einnig stoltur af því að hafa skapað störf fyrir aðra.
Heldur sér heitum í flughermi heima og staðráðinn í að snúa aftur í háloftin
Undirbúningurinn að opnun kaffihússins hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig en sjálfur smitaðist
Alexander af kórónaveirunni nokkrum vikum áður en til stóð að opna Flight 7 kaffihúsið en hann náði
þó fullum bata mjög fljótt. Þá gleymdust matvæli í ofninum fljótlega eftir opnun og munaði litlu að kaffihúsið
hefði brunnið til kaldra kola.
Alexander Torres fyrir framan nýja kaffihúsið
Þrátt fyrir velgengnina með nýja kaffihúsið þá er Alexander staðráðinn í að snúa aftur upp í háloftin um leið
og flugiðnaðurinn fer að ná sér aftur - „Um leið og ég get þá fer ég aftur í loftið. Ég sakna þess hræðilega“, segir
Alex sem ætlar sér að finna annan aðila til þess að taka við rekstrinum þegar hann fer aftur að fljúga.
„Ég hef trú á því að farþegarnir komi mjög fljótt aftur og að eftirspurn eftir flugi verði gríðarleg“, segir Alex en á
meðan þá sér hann til þess að öll skírteini og áritanir séu í gildi og þá heldur hann sér heitum með því að grípa
í flug í flughermi heima hjá sér að minnsta kosti einu sinni í viku til þess að æfa tékklista og staðlaðar starfsaðferðir
í stjórnklefanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.