flugfréttir
Finnair gerir samkomulag um kaup á rafmagnsflugvélum
- Stefna á að taka allt að 20 flugvélar frá Heart Aerospace
Tölvugerð mynd af ES-19 rafmagnsflugvélinni sem er nú í þróun hjá sænska fyrirtækinu Heart Aerospace
Finnska flugfélagið Finnair hefur áhuga á að hefja farþegaflug með rafmagnsflugvélum og hefur flugfélagið undirritað samning um möguleg kaup á tuttugu rafknúnum flugvélum frá sænska fyrirtækinu Heart Aerospace af gerðinni ES-19.
Heart Aerospace vinnur nú að þróun á ER-19 flugvélinni sem mun taka 19 farþega og verður hún 100% knúin
áfram með raforku en flugvélin mun koma til með að hafa flugdrægi upp á 250 mílur (nm) sem samsvarar 463 kílómetrum.
„Finnair hefur trú á því að rafknúið flug sé það sem koma skal í framtíðinni og viljum við koma að
þróun og innleiðingu er kemur að nýrri tækni sem snertir umhverfisvænt flug án losun kolefna “, segir í yfirlýsingu frá Finnair
Samningurinn sem Finnair undirritaði í dag er hluti af skuldbindingum félagsins er varðar sáttmála Nordic
Electric Aviation Initiative (NEA) sem flugfélagið undirritaði árið 2019.
ES-19 verður fjögurra hreyfla flugvél með T-stéli sem getur athafnað sig á stuttum flugbrautum með farflugshraða upp á 215
hnúta en flugvélin er sérstaklega hönnuð fyrir flugvelli á norðurhluta Skandinavíu. Flugvélin var fyrst kynnt í september
í fyrra og stefnir Heart Aerospace á að flugvélin fái vottun árið 2026 þrátt fyrir að verkefnið sé enn á þróunarstigi.
Heart Aerospace segir að átta önnur flugfélög hafi sýnt ES-19 rafmangsflugvélinni áhuga sem samsvarar mögulegum
pöntunum í alls 147 eintök af flugvélinni ef flugfélögin enda með því að panta allar þær flugvélar sem þau telja
sig hafa not fyrir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.