flugfréttir
Spænskt flugfélag sækir um styrk fyrir rafmagnsflugvél
Tölvugerð mynd af rafmagnsflugvél í litum spænska lágfargjaldafélagsins Volotea
Spænska lágfargjaldafélagið Voletea hefur greint frá því að félagið hafi sótt um styrk upp á 6.3 milljarða króna úr björgunarsjóði á vegum Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins til þess að fjárfesta í þróun og möguleg kaup rafmangsflugvélum í framtíðinni.
Umsókn styrksins er hluti af samstarfi flugfélagsins við Air Nostrum og spænsk-ástralska fyrirtækisins Dante Aeronautical sem vinnur að þróun
farþegaflugvélar sem er knúin áfram fyrir raforku.
Styrkurinn mun fjármanga verkefni sem miðar af því að þróa rafmangsflugvél sem tæki frá níu til 19 farþega sem yrði notuð
á stuttum flugleiðum og segir í fréttatilkynningu að slík flugvél myndi koma sér vel fyrir áætlunarflug til afskekktra svæða og einnig
til eyja í nágrenni Spánar og á sama tíma væri hægt að draga úr losun kolefna sem ógnar nú umhverfi jarðar.
Stefnt er á að fyrsta flugvélin fengi flughæfnisvottun árið 2024 og er gert ráð fyrir að flugvélin yrði komin í fulla almenna notkun árið 2026
ef allt gengur upp samkvæmt áætlun.
Í tilkynningu segir að mögulega væri hægt að framkvæmda viðkomandi flugvél á skömmum tíma
og forðast með því langt þróunarferli á flugvélahönnun frá grunni en Volotea og Air Nostrum
yrðu brautryðjendur í verkefninu og myndu flugfélögin safna mikilvægum upplýsingum um þörfina
og eftirspurnina fyrir slíka flugvél á markaðnum.
Fram kemur að flugfélagið Volotea hafi hafið samstarf við Dante Aeronautical árið 2019 og sé samstarfið
í dag orðið mun viðameira og þá er einnig séð fram á að rafmagnsflugvélar eigi eftir að geta aðstoðað
flugfélög við að ná sér fyrr á strik eftir heimsfaraldurinn með tilheyrandi sparnaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.