flugfréttir
Tvær þotur flugu til rangs flugvallar í Zambíu sama daginn
- Önnur þotan lenti en hin hætti við lendingu á síðustu stundu
Boeing 737-800 fraktþotan á nýja flugvellinum í Ndola í gær sem er lokaður þar sem hann hefur ekki verið tekinn í notkun
Fraktþota frá flugfélaginu Ethiopian Airlines lenti í gær á röngum flugvelli í Zambíu er flugvélin var að lenda eftir flug frá Addis Ababa í Eþíópíu.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 737-800, átti að lenda á Simon Mwansa Kapwepwe flugvellinum í Ndola, næststærstu
borgar landsins, en lenti þess í stað á Copperbelt International flugvellinum sem er nýr flugvöllur fyrir borgina sem hefur
enn ekki verið tekinn í notkun þar sem framkvæmdum er ekki lokið.
Flugvélin lenti og ók að flughlaðinu þar sem verkamenn að störfum reyndu að gefa flugmönnunum merki um að
flugvöllurinn væri ekki í notkun. Þotan fór því næst af flughlaðinu og ók að flugbrautinni og fór í loftið skömmu síðar
af sömu braut og þotan lenti á.
Einn verkamaður tók myndband af þotunni þar sem nokkrir aðrir verkamenn reyndu að hrópa og kallað að flugmönnunum
að þeir væru að lenda á vitlausum flugvelli á meðan þotan ók eftir flughlaðinu.
Það furðulega við þessa frétt er að þetta var ekki eina þotan sem gerði aðflug að þessum sama flugvelli þennan dag því
önnur þota frá Ethiopian Airlines var næstum búinn að lenda á flugvelinum tveimur og hálfum tíma síðar.
Þá var um að ræða þotu sem var einnig af gerðinni Boeing 737-800 sem átti einnig að lenda á alþjóðaflugvellinum í Ndola
sem var einnig að koma frá Addis Ababa en sú þota hætti við að lenda þegar hún var nánast komin að flugbautarendanum
og fór í fráhvarfsflug (go-around).
Um 9 mílur aðskilja að núverandi alþjóðaflugvöllinn í Ndola og nýja flugvöllinn, sem er ennþá ekki tilbúinn, og liggja
flugbrautir vallanna samsíða með sömu stefnu. Einn flugmaður tekur fram að X-merkingarnar á flugbrautinni sem er lokuð
á nýja flugvellinum séu mjög daufar og erfitt fyrir flugmenn að sjá þær.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.