flugfréttir

Lítil merki um batahorfur í farþegaflugi í heiminum

8. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:06

Ennþá eru um 90 prósent færri farþegar sem fljúga í millilandaflugi í heiminum samanborið við tölur um farþegafjölda fyrir tíma COVID-19

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) segjast ekki sjá nein ummerki um batahorfur í flugiðnaðinum ennþá vegna heimsfaraldusins og er farþegaflug ennþá í stöðugu lágmarki.

Í febrúar síðastliðnum voru 89% færri farþegar sem ferðuðust að meðaltali með millilandaflugi samanborið við febrúar árið 2019 og þá hefur fjöldi farþega í innanlandsflugi dregist saman um 51% á sama tímabili í flestum löndum.

„Ekki var hægt að sjá nein ummerki um framfarir eða neinn bata í febrúar og var eftirspurn eftir farþegaflugi svipuð og hún hefur verið“, segir Willie Walsh, sem hefur nýlega tekið við stöðu yfirmanns IATA.

Í nýútkominni skýrslu segir að verst sé ástandið í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu þar sem farþegaflug hefur dregist saman um 95% og þá hefur ástandið einnig verið slæmt í Evrópu þar sem farþegafjöldinn í millilandaflugi hefur dregist saman um 89 prósent.

Þá segir að innanlandsflug í Ástalíu sé sá markaður sem hefur minnst orðið fyrir barðinu á COVID-19 en þar hafa fáar takmarkanir er kemur að innanlandsflugi valdið því að eftirspurn eftir flugi meðal ástralskra flugfélaga hefur verið töluverð.

Willie Walsh mælir með því að útgáfa á rafrænum heilbrigðisvottorðum sé sú leið sem myndi henta best til þess að koma farþegaflugi í heiminum aftur á skrið en til þess að það skili árangri þarf að tryggja samræmi er varðar slík vottorð svo að þau gildi í flestum löndum auk þess sem ríki þurfa þá að samþykkja rafrænar niðurstöður vegna heilbrigðis og bólusetninga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga