flugfréttir

LATAM hættir með Airbus A350

- Skila öllum nýju Airbus A350 breiðþotunum

11. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:04

Airbus A350 þota í litum LATAM

Brasilíska flugfélagið LATAM hefur ákveðið að hætta með allar nýju Airbus A350 breiðþoturnar en flugfélagið sendi tilkynningu um helgina til starfsmanna sinna með yfirlýsingu um að allar A350 þoturnar væru á förum.

Airbus A350 þoturnar eru að finna í flota LATAM Brasil og hefur félagið fengið ellefu þotur afhentar en sjö af þeim verða strax teknar úr notkun en hinar fjórar munu yfirgefa flotann á næstu dögum.

Aðeins eru 5 ár síðan að félagið fékk fyrstu Airbus A350 þotuna afhenta sem var í desember árið 2015 og var sú þota afhent til TAM Linhas Aéreas.

TAM Linhas Aéreas pantaði Airbus A350 þoturnar árið 2008 en árið 2012 var tilkynnt um sameiningu flugfélagsins TAM og LAN og við samrunann varð til flugfélagið LATAM sem er stærsta flugfélagið í Suður-Ameríku.

Jerome Cadier, framkvæmdarstjóri LATAM, segir að breiðþotuflugfloti félagsins mun héðan í frá samanstanda eingöngu af Boeing 767, Boeing 777 og Dreamliner-þotunum. Ekki er vitað hvað verður um Airbus A350 þotur félagsins, hvort þeim verði skilað beint til eigenda sem eru flugvélaleigur og fjárfestingarfyrirtæki eða hvort þær fari til annarra flugfélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga