flugfréttir
Banna flug sem tekur minna en tvo og hálfan tíma með lest
Airbus A320 þota frá Air France á Orly-flugvellinum í París í Frakklandi
Ríkisstjórn Frakklands hefur samþykkt í atkvæðagreiðslu tillögu um reglugerð sem bannar flugferðir í innanlandsflugi í Frakklandi sem farþegar geta ferðast með lestum ef lestarferðin tekur styttri tíma en tvær og hálfa klukkustund.
Þetta er gert í þeim tilgangi að draga úr mengun með tilliti til umhverfissjónarmiða en stefna franskra stjórnvalda
er að draga úr losun kolefna í Frakklandi um 40 prósent fyrir árið 2030 og ná sambærilegri losun kolefna
og var í Frakklandi árið 1990 innan níu ára.
Þessi ákvörðun franskra stjórnvalda kemur aðeins nokkrum dögum eftir að ríkisstjórnin samþykkti 600 milljarða
króna fjárveitingu inn í rekstur Air France til þess að rétta af rekstur flugfélagsins franskra vegna áhrifa
af heimsfaraldrinum.
Agnes Pannier-Runacher, iðnaðarráðherra Frakklands, vísar gagnrýni á bug vegna ásakana frá
flugiðnaðinum í Frakklandi sem segir að það sé ekki rétti tíminn núna til þess að koma með reglugerð
sem skerðir flugsamgöngur þegar flugfélög mega síst við því.
„Við vitum að flug á stóran þátt í losun kolefna út í andrúmsloftið og vegna loftslagsbreytinga í heiminum
þá þurfum við að leggja okkar að mörkum til þess að draga úr útblæstri“, segir Agnes sem tekur fram að á sama
tíma sé verið að styðja við bakið á flugfélögum líkt og Air France sem er að fá fjármagn inn í reksturinn.
Umhverfisverndarsamtök í Frakklandi telja að tillagan hefði mátt vera strangari og segja umhverfissinnar
að þeir hefðu viljað sjá að reglugerðin færi fram á bann við innanlandsflugi þar sem lestarsamgöngur taka allt að 4 klukkustundir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.