flugfréttir
Fyrsta P8-A Poseidon fyrir Noreg í samsetningu í Renton
Skrokkurinn fyrir fyrstu P-8A Poseidon eftirlitsflugvélina fyrir norska flugherinn
Samsetning mun hefjast á næstunni hjá Boeing í Renton á fyrstu P-8A Poseidon eftirlitsflugvélinni fyrir norska flugherinn.
Skrokkurinn fyrir fyrstu flugvélina kom til Renton í gær eftir að hafa verið ferjaður með lest frá Wichita
í Kansas þar sem búkurinn var framleiddur hjá fyrirtækinu Spirit AeroSystems.
Skrokkurinn mun á næstunni fara inn í Boeing 737 samsetningarsalinn í Renton þar sem vængir, aðrir stjórnfletir og hjólabúnaði verður komið fyrir auk þess sem öllum kerfum og rafmagnssnúrum verða sett upp í vélinni.
Því næst fer flugvélin til varnar- og hernaðardeildar Boeing þar sem sérhæfðum búnaði
verður komið fyrir er snýr að eftirlitsflugi og hernarðarleiðangrum og verða þau kerfi
einnig prófuð áður en flugvélin verður afhent til Noregs.
Norski flugherinn pantaði árið 2017 fimm P-8A Poseidon flugvélar og verður sú fyrsta afhent síðar á þessu ári
en afhendingar standa yfir til ársins 2023 og er flugvélunum ætlað að leysa af hólmi P-3 Orion flugvélarnar.
Boeing hefur í dag afhent 104 P-8A Poseidon eftirlitsflugvélar til bandaríska flughersins, til Ástralíu, Indlands
og til breska flughersins.
Norski flugherinn hefur í dag þjálfað tólf flugmenn á P-8A Poseidon flugvélarnar sem áður
flugu P-3 Orion flugvélunum en sex af þeim verða þjálfaðir til þess að kenna á flugvélarnar í Jacksonville
í Flórída og hinir sex flugmennirnir munu sjá um tilraunir og prófanir á flugvélunum sem fara
fram á Patuxent River herstöðinni í Maryland í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.