flugfréttir

TAROM setur helming flugflotans á sölu

- Selja allar Airbus A318 þoturnar fjórar

13. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Airbus A318 þota frá TAROM

Rúmenska flugfélagið TAROM hefur ákveðið að setja á sölu allar þær Airbus A318 þotur sem félagið hefur en TAROM er eitt af þeim örfáu flugfélögum í heiminum sem hefur ennþá þessa minnstu farþegaþotu, sem Airbus hefur framleitt, í notkun.

TAROM hefur 29 þotur í flota sínum og ætlar félagið að selja fjórtán þotur og þar af allar fjórar Airbus A318 þoturnar en með því að losa sig við helminginn af flotanum vonast flugfélagið eftir því að geta aukið rekstarfé sitt og dregið úr taprekstri vegna heimsfaraldursins.

Flugvélarnar sem seldar verða úr flotanum eru fjórar Airbus A318 þotur, fjórar Boeing 737-300 þotur, fjórar 737-700 og tvær ATR 42-500 skrúfþotur.

Flugfloti TAROM eftir þetta mun því samanstanda af fimm ATR 42-500 vélum, fjórum Boeing 737-800, fjórum ATR 72-600 og tveimur ATR 72-500 flugvélum.

Ódýrasta flugvélin sem seld verður er Boeing 737-300 en sú elsta var framleidd fyrir félagið árið 1993 og er vonast til þess að félagið fái 189 milljónir króna fyrir eina slíka þotu en félagið setur 832 milljónir á hverja Airbus A318 þotu.

Airbus A318 þoturnar voru framleiddar frá árinu 2001 til ársins 2013 en aðeins 80 eintök voru smíðuð á þessu tímabili og eru 47 slíkar enn í notkun í heiminum í dag en flestar eru að finna í flota Air France sem hefur átján þotur enn í notkun af þessari gerð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga