flugfréttir
Qantas staðráðið í að hefja millilandaflug að nýju í haust
Boeing 787-9 Dreamliner-þota frá Qantas
Ástralska flugfélagið Qantas er staðráðið í að hefja millilandaflug á ný að fullum krafti síðar á þessu ári þrátt fyrir að tafir hafi orðið á bólusetningu í Ástralíu.
Qantas ætlar sér að hefja millilanda á ný þann 31. október í haust sama hvað tautar og raular en Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur lýst yfir efasemdum yfir bjartsýninni hjá Qantas hvað varðar áætlanir um að hefja flug að nýju til og frá Ástralíu í haust.
Til stóð að ljúka bólusetningu meðal allra íbúa Ástralíu með bóluefninu
frá AstraZeneca fyrir lok þessa árs en Morrison telur hæpið að það náist og þar af leiðandi
væri ekki grundvöllur til þess að opna Ástralíu upp á gátt í haust.
Qantas lýsti því yfir eftir orð forsætisráðherrans að flugfélagið myndi fylgjast náið með þróun mála og segir talsmaður félagsins að engin áform séu uppi með að hefja millilandaflug að nýju í haust sem stangast á við orð framkvæmdarstjórans.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.