flugfréttir

Hafa misst pantanir í 1.200 flugvélar á einu ári

14. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:38

Dreamliner-þotur fyrir framan verksmiðjur Boeing í Everett

Boeing hefur misst pantanir í yfir 1.200 flugvélar á síðustu tólf mánuðum og þar af staðfestar pantanir í 800 flugvélar sem bæði má rekja til heimsfaraldursins og einnig til vandamála með Boeing 737 MAX þoturnar.

Um er að ræða afbókanir frá viðskiptavinum þar sem bæði flugfélög og flugvélaleigufyrirtæki hættu við pantanir í nýjar flugvélar og höfðu afbókanir hrannast upp jafnt og þétt á sama tíma og eftirspurn eftir flugi hefur verið í einni mestu lægð sem um getur í sögu flugsins.

Fyrir lok mars á þessu ári stóð heildarfjöldi þeirra flugvéla sem pantaðar hafa verið frá Boeing frá upphafi í um 17.000 flugvélum og þar af voru 4.054 flugvélar sem var búið að panta og á eftir að afhenda.

Fyrir lok mars árið 2020 stóðu sömu tölur í 17.835 flugvélum sem pantaðar höfðu verið frá upphafi og þar af átti eftir að smíða eða afhenda 5.049 flugvélar.

Séu þessar tölur á milli ára bornar saman sést að viðskiptavinir Boeing hafa á einu ári hætt við pantanir í 835 flugvélar en í heildina hafa staðfestar pantanir í um 1.200 flugvélar verið fjarlægðar af listanum en afpantanirnar telja um 670 flugvélar og þá hafa pantanir í 550 flugvélar verið fjarlægðar þar sem ekki hefur verið séð fram á að viðskiptavinur getur stað við skuldbindingar sínar vegna fjárhagsstöðu.

Af þeim pöntunum sem hafa verið afskrifaðar á síðustu 12 mánuðum sem samsvarar um 1.200 flugvélum þá voru um 1.000 Boeing 737 MAX þotur inni í þeirri tölu en hætt var við pantanir í 640 Boeing 737 MAX þotur og þá voru pantanir í 400 þotur til viðbótar afskrifaðar eftir neikvæða útreikninga og breytinga á pöntunarlista.

Meðal þeirra flugfélaga sem hafa hætt við mikinn fjölda af Boeing 737 MAX vélum eru til að mynda Air Canada, Copa Airlines, Virgin Australia og kanadíska flugfélagið WestJet og þá hætti Turkish Airlines nýlega við pöntun í 50 MAX þotur.

Þá hefur óvissa með áform norska flugfélagsins Norwegian orðið til þess að ekki er víst hvað verður um pöntun félagsins í 92 Boeing 737 MAX þotur og þá hafa flugvélaleigur á borð við AerCAp, Air Lease Corporation, Aviation Capital Group, Avolon, BOC Aviation, CDB Aviation, GE Capital og SMBC Aviation Capital einnig hætt við einhverjar Boeing 737 MAX þotur.

Þrátt fyrir þessar afbókanir í 737 MAX þoturnar þá hefur Boeing fengið nýlega töluvert stórar pantanir upp á móti í þoturnar en Ryanair tilkynnti í desember um pöntun í 75 fleiri 737 MAX þotur, United Airlines pantaði 25 þotur til viðbótar í febrúar og þá lagði Southwest Airlines inn pöntun í mars í 100 eintök af Boeing 737 MAX 7 þotunni.

Af þeim 1.200 flugvélum sem hafa verið fjarlægðar af pöntunarlista Boeing þá eru um 140 breiðþotur á þeim lista en hætt hefur verið við pantanir í 67 Boeing 777 þotur og 47 Dreamliner-þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga