flugfréttir

Stefna á að Flybe muni fljúga á ný í sumar

15. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Flybe varð gjaldþrota í mars árið 2020

Breska fyrirtækið Thyme Opco hefur tilkynnt um að það hafi lokið við kaup á þrotabúi breska lágfargjaldaflugfélagsins Flybe og sé stefnt að því að Flybe muni hefja flug á ný í sumar.

Flybe varð eitt af fyrstu flugfélögunum sem urðu gjaldþrota í Evrópu eftir að kórónaveirufaraldurinn byrjaði að breiðast út og hafa áhrif á flugiðnaðinn en félagið varð gjaldþrota þann 5. mars í fyrra.

Thyme Opco er fyrirtæki sem tengist fjárfestingarsjóðnum Cyrus Capital, sem var einn stærsti hluthafi í Flybe, og tilkynnti fyrirtækið í október í fyrra að til stæði að kaupa allar eignir flugfélagsins með því markmiði að koma því aftur í loftið.

Til stendur að breyta nafni flugfélagsins í Flybe Limited en talsmaður fyrirtækisins að endurkoma Flybe á markaðinn ræðst af framvindu faraldursins og árangri í bólusetningu í helstu löndum Evrópu.

„Með tilliti til bólusetningu og afléttingu á ferðatakmörkunum þá er áætlunin að bjóða upp á enn betri þjónustu með nýja Flybe flugfélaginu í sumar og mun félagið fljúga allar þær helstu flugleiðir sem félagið flaug áður og þær leiðir þar sem verður mikil eftirspurn eftir flugi“, segir talsmaður félagsins.

Tekið er fram að Flybe mun verða smærra í sniðum til að byrja með en stefnt sé á að auka umsvifin og skapa með því atvinnutækifæri með fleiri áfangastöðum í leiðarkerfinu bæði innan Bretlands og Evrópu.

Meðal þess sem verið er að vinna að er að endurheimta lendingarpláss á flugvöllum á borð við London Heathrow og þá hafa bresk flugmálayfirvöld tilkynnt að verið sé að vinna að endurútgáfu á flugrekstarleyfi félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga