flugfréttir
Rak stélið ofan í braut í flugtaki vegna mistaka í hleðsluáætlun
Airbus A320 þota frá Alitalia á Malpensa-flugvellinum í Mílanó
Talið er að mistök við jafnvægisútreikninga á hleðsluáætlun er varðar þyngdardreifingu á farþegum og frakt hafi verið orsök alvarlegs atviks sem átti sér stað er Airbus A320 þota frá ítalska flugfélaginu Alitalia rak stélið ofan í braut í flugtaksbruni á Malpensa-flugvellinum í Mílanó þann 17. ágúst árið 2017.
Í lokaskýrslu frá rannsóknarnefnd flugslysa á Ítalíu kemur fram að þotan hafi
verið í leiguflugi fyrir hönd skipafélags og var verið að ferja farþega á skemmtiferðaskipi
á milli áfangastaða er atvikið átti sér stað.
Þotunni hafði verið flogið fimm leggi umræddan dag en fyrst flaug flugvélin
frá Róm til Mílanó og þaðan áfram til Hamborgar í Þýskalandi og aftur til Mílanó
og var verið að undirbúa flugið áfram til baka til Rómar þegar atvikið átti sér stað.
Fram kemur að 171 farþegi hafði farið um borð í flugvélina í Hamborg á leiðinni
til baka til Ítalíu og voru 68 sem yfirgáfu vélina í Mílanó á meðan 103
biðu í flugvélinni eftir því að halda áfram til Rómar.
Farþegum til Mílanó var komið fyrir í sætaraðir
frá 1 til 12 á meðan farþegum til Rómar var komið fyrir í sætaröðum frá 12 og aftur úr og þá var farangri komið fyrir í fremstu fraktrýmunum sem tilheyrði farþegum sem fóru út í Mílanó á meðan farangur farþeganna til Rómar var settur aftast í vélina.
Alitalia notar sérhæft forrit sem hlaðmenn félagsins nota til þess að reikna
út hleðslu um borð í vélarnar en umrætt forrit var ekki tiltækilegt á flugvellinum
í Hamborg þar sem flugfélagið flýgur ekki þangað í reglubundnu áætlunarflugi en
þess í stað var afrit af hleðsluskránni sent í tölvupósti til stjórnstöðvarinnar
á flugvellinum í Róm.
Hleðsluskjalið var hinsvegar ekki útfært fyrir flug með mörgum áfangastöðum
í einu („multi-leg flight“) sem varð til þess að mistök voru gerð við sætaskipan
farþega sem orsakaði það að flugvélin var orðin afturþung þegar farþegarnir
til Mílanó yfirgáfu flugvélina.
Vegna þessa rakst stélhluti vélarinnar ofan í brautina í flugtaksbruninu en flugmennirnir náðu að hætta við flugtakið og var fluginu aflýst og flugvélinni ferjuflogið frá Mílanó til Rómar í 10.000 feta hæð þar sem viðgerð fór fram.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.