flugfréttir
Þota frá Surinam Airways kyrrsett vegna skulda
Boeing 737-700 þota frá Surinam Airways
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-700 var í vikunni gerð upptæk af eigendum vélarinnar á flugvellinum í Miami vegna vangoldinna leigugjalda.
Þotan, sem er í flota flugfélagsins Surinam Airways, flaug til Miami þann 13. apríl sl. og var verið að undirbúa
vélina fyrir brottför til baka til Paramaribo en fram kemur að flugfélagið skuldi leigugjöld til flugvélaleigunnar allt
að ár aftur í tímann sem varð til þess að þotan var kyrrsett á flugvellinum í Miami.
Surinam Airways hefur í dag aðeins tvær flugvélar í flotanum sem eru báðar af gerðinni Boeing 737-700 en hin þotan
var einnig kyrrsett á flugvellinum í Miami í febrúar. Flugvélin sem var kyrrsett þann 13. apríl fékk hinsvegar að halda
áfram för sinni til Surinam að kvöldi 14. apríl.
Flugvélarnar eru í eigu flugvélaleigunnar Aircastle og kemur fram að flugfélagið hafi greitt fyrirtækinu 82 milljónir
inn á skuldina til að aflétta kyrrsetningunni til að koma farþegum, sem áttu bókað flug frá Miami, á áfangastað.
Ríkisstjórn Surinam tilkynnti í mars að til stæði að endurskipuleggja rekstur flugfélagsins sem hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum en í lok ársins 2020 voru skuldir Surinam Airways komnar í 120 milljónir dala sem
samsvarar 15.2 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.