flugfréttir
Frekari vandamál uppgötvast í rafkerfi á 737 MAX
Boeing 737 MAX 7 tilraunarþota Boeing
Boeing hefur komið auga á enn fleiri atriði sem þarfnast lagfæringar er snertir rafkerfið á Boeing 737 MAX þotunum aðeins nokkrum dögum eftir að tilkynnt var um vandamál í rafkerfi vélanna í síðustu viku.
Það var þann 8. apríl sem Boeing tilkynnti nokkrum flugrekendum og flugfélögum um að
nauðsynlegt væri að kyrrsetja ákveðin fjölda af Boeing 737 MAX þotunum af öryggisástæðum
vegna galla í rafkerfi.
Að þessu sinni er um að ræða tvo aðskilda galla í rafkerfinu í flugstjórnarklefanum á tilteknum
fjölda Boeing 737 MAX þotna sem varðar annarsvegar kerfi sem nefnist „power control unit“ og rafmagnsborð sem tengist skjánum bakvið stýrið sem snýr að flugmönnunum („primary flight display“ og
„navigation display“).
Þetta nýja vandamál, sem var kynnt fyrst sl. föstudag, nær yfir um 1/5 af öllum þeim Boeing 737 MAX þotum
sem framleiddar hafa verið og segir í tilkynningu frá Boeing að lagfæringar á þessu vandamáli séu
tiltölulegar fljótgerðar og ekki viðamiklar í framkvæmd.
Boeing mun á næstunni gera leiðbeiningar með fyrirmælum fyrir flugrekendur varðandi hvernig á að lagfæra
vandamálið en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) munu fyrst þurfa að fara yfir leiðbeiningarnar áður
en þær verða sendar út.
Vandamálið er rakið til þess að Boeing skipti um efni sem notað er sem einangrun utan um rafmagnsleiðslur
þegar framleiðsla hófst á ný á Boeing 737 MAX þotunum eftir að smíði þeirra var stöðvuð á sínum tíma
vegna kyrrsetningarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.