flugfréttir

Ryanair áfrýjar dómi ESB varðandi styrki til SAS og Finnair

19. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:41

Boeing 737-800 þotur Ryanair

Ryanair ætlar að áfrýja dómi Evrópudómstólsins sem vísaði frá máli lágfargjaldaflugfélagsins írska sem telur að fjárhagsaðstoð frá ríkisstjórnum Svíðþjóðar, Finnlands og Dannmerkur til flugfélaganna Scandinavian Airlines (SAS) og Finnair sé ólögmæt og stangist á lög um opinbera aðstoð.

Evrópudómstólinn telur hinsvegar að vegna heimsfaraldursins að þá sé fjárhagsstyrkur frá löndunum þremur til SAS og Finnair í samræmi við þær reglugerðir sem gerðar voru vegna COVID-19 og sé ekkert athugavert við þær fjárveitingar sem eru bæði í formi styrkja og ríkistrygðra lána.

Þá segir í niðurstöðu dómsins að það þyki ekkert óeðlilegt að SAS og Finnair fái fjárhagsaðstoð í sínum löndum þar sem þau séu umsvifamest og markaðshlutdeild þeirra mun meiri en erlend samkeppnisflugfélög sem fljúga til þeirra landa.

Ryanair bendir á í máli sínu að eitt aðalmarkmið Evrópusambandsins hafi verið að greiða leið allra flugfélaga um öll lönd Evrópu og sjá til þess að samkeppni þeirra sé heiðarleg og það sama eigi að gilda um þær aðstoðir og ríkisstyrki sem eru í boði vegna heimsfaraldursins og eigi því ekki að mismuna erlendum flugfélögum sem hafi verið að fljúga til annarra landa.

Ryanair segir að aðför Evrópusambandsins er kemur að leyfisveitingum fyrir fjárhagsaðstoð til flugfélaga sé frekar innihaldslaus þar sem verið er að gefa grænt ljós fyrir því að ríkisstjórnir geti dælt endalausu fé til að halda uppi „uppvaknings-ríkisflugfélögum“ (zombie flag carriers) sem hafa verið hvort sem er verið löngu búin að missa titilinn sem „þjóðarflugfélag“ þeirra landa.

Að lokum segir Ryanair að með þessu sé verið að stuðla að óheilbrigðri samkeppni sem eigi eftir að skaða neytendur og markaðinn á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga