flugfréttir
Qatar Airways afskrifar fimm A380 risaþotur
- Helmingur risaþotnanna mun fara úr flota félagsins
Airbus A380 risaþota frá Qatar Airways í lendingu á Heathrow-flugvellinum í London
Flugfélagið Qatar Airways hefur staðfest að félagið ætli að skera niður fjölda Airbus A380 risaþotnanna um helming og taka því fimm risaþotur endanlega úr flotanum.
Qatar Airways sem hefur 10 risaþotur í flotanum mun því hafa fimm A380 þotur eftir sem áætlað er að verða
notaðar í áætlunarflugi en fram kemur að hinar risaþoturnar fimm sem eftir verða í flotanum munu einnig hverfa
úr flotanum ef áhrifin af heimsfaraldrinum dragast á langinn um tvö til þrjú ár til viðbótar.
„Það er engin framtíð fyrir Airbus A380. Þetta var röng flugvél sem kom á röngum tíma. Farþegar hafa hinsvegar elskað að ferðast með Airbus A380 þar sem hún er mjög rúmgóð og er mjög hljóðlát. En á endanum þá er mjög erfitt að reka þær
og halda þeim fljúgandi fyrir flugrekstraraðilann“, segir Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri
Qatar Airways.
Al Baker segir að það sé gríðarlega dýrt að reka Airbus A380 í því umhverfi sem er viðloðandi
í dag í flugiðnaðinum og tekur hann fram að C-skoðun er kemur að viðhaldi sé þrisvar
sinnum dýrari en sama viðhaldsskoðun fyrir Boeing 777 og Airbus A350-100 þoturnar.
Þá tekur Al Baker fram mikilvægi þess að Qatar Airways leggi sitt af mörkum er
kemur að umhverfismálum og segir hann að A380 sé langt frá því að vera umhverfisvæn
flugvél líkt og Boeing 787 og Airbus A350 og efast hann um að farþegar vilji stíga um borð í flugvél sem mengar mikið á tímum sem að mikil vitundavakning
er meðal farþega er kemur að umhverfisvænum ferðamáta.
Qatar Airways varð níunda flugfélagið í heimi til þess að panta Airbus A380 risaþotuna árið 2001 þegar félagið lagði inn pöntun í tvær risaþotur með kauprétti á tveimur
til viðbótar en pöntunin var síðan staðfest á flugsýningunni Dubai Air Show árið 2003.
Félagið pantaði síðan þrjár til viðbótar á Paris Air Show árið 2007 og svo fimm til viðbótar á Dubai Air Show flugsýningunni árið 2011.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.