flugfréttir

Íhuga að hætta við helminginn af Boeing 777X þotunum

26. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:02

Boeing 777 þotur kínverska flugfélagsins Cathay Pacific

Sagt er að flugfélagið Cathay Pacific ætli sér að hætta við allt að helminginn af þeim Boeing 777X þotum sem félagið hafði pantað á sínum tíma.

Cathay Pacific á von á 21 þotu af gerðinni Boeing 777-9 og kemur fram að stjórn flugfélagsins sé að íhuga að skera niður pöntunina um allt að helming en félagið pantaði þoturnar í desember árið 2013, fyrst allra flugfélaga í Asíu.

Upphaflega átti Cathay Pacific að fá sína fyrstu Boeing 777X þotu afhenta á þessu ári en þær áætlanir hafa breyst vegna vandamála sem hafa komið upp hjá Boeing varðandi 777X þoturnar sem hefur orðið til þess að mörg flugfélög eru farin að missa þolinmæðina en þó hefur heimsfaraldurinn gefið Boeing eilítinn gálgafrest.

Emirates er það flugfélag sem hefur pantað flestar Boeing 777X þotur eða alls 115 eintök en Tim Clark, forstjóri félagsins, segir óvíst hvenær Emirates á von á að fá þá fyrstu afhenta frá Boeing.

Emirates pantaði fyrst 150 Boeing 777X þotur en þeim var fækkað um 35 þotur og hefur Clark tekið fram að mögulega muni Emirates fækka þeim enn frekar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga