flugfréttir
Taka júmbó-þotuna aftur í notkun
Júmó-þota af gerðinni Boeing 747-300 frá Mahan Air
Á tímum sem flest flugfélög eru að taka júmbó-þotuna úr umferð þá hefur íranska flugfélagið Mahan Air ákveðið að dusta rykið af sinni júmbó-þotu til að koma henni aftur í umferð.
Mahan Air hafði lagt júmbó-þotu sinni á sínum, sem er af gerðinni Boeing 747-300, og komið henni fyrir í geymslu en fyrir nokkrum
dögum ákvað félagið að setja hana aftur inn í leiðarkerfið sitt fyrir áætlunarflug á milli Teheran og eyjunnar Kish Island.
Júmbó-þotan sem félagið hefur byrjað að nota aftur hefur gengist undir viðamikla C-skoðun þar sem örlög hennar voru ekki ákveðin
eftir atvik sem átti sér stað þann 15. október árið 2015 er sprenging kom upp í einum af fjórum hreyflum þotunnar í flugtaki.
Þotan, sem ber skráninguna EP-MNE, hefur gengist undir viðgerð sem hefur dregist á langinn í 5 ár og var skipt um tvo hreyfla
á vélinni sem fengnir voru af annarri Boeing 747-300 þotu úr flota félagsins sem var færð í niðurrif fyrir varahluti.
Þess má geta að aðeins tvo flugfélög í heiminum fljúga ennþá Boeing 747-300 tegundinni sem eru Mahan Air og
rússneska flugfélagið TransAVIAexport Airlines sem hefur fraktútgáfu af þotunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.