flugfréttir
Neita að semja við verkalýðsfélög á Ítalíu
Flugvélar í flota Wizz Air
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air segist ekki ætla að koma til móts við kröfur ítalskrar verkalýðsfélaga um að ná sáttum við samningaborðið á sama tíma og félagið hefur aukið umsvif sín til muna á Ítalíu.
Þetta kemur fram í bréfi frá Wizz Air til verkalýðs- og félagsmálaráðuneytis Ítalíu eftir að fjölmargar stofnanir
í landinu höfðu kvartað undan áhugaleysi meðal flugfélagsins er kemur að viðræðum vegna kjarasamninga.
Wizz Air vitnar í bréfi sínu í stefnu flugfélgsins sem er að forðast eins og mögulegt er að aðhyllast hugmyndafræði
er varðar kjaramál og tekur félagið fram að samningaviðræður við verkalýðsfélög á Ítalíu hafi gengið mjög erfiðlega.
Wizz Air hefur aukið umsvif sín á Ítalíu gríðarlega frá því í fyrra með því að fylla í skarðið sem Alitalia hefur
skilið eftir sig og hefur félagið opnað núna fjórðu starfsstöðina sína sem er í Palermo á Sikiley.
Þessi auknu umsvif hafa valdið fjaðrafoki einnig meðal annarra erlendra lágfargjaldafélaga á borð við Ryanair
sem einnig hefur verið umsvifamikið á Ítalíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.