flugfréttir
Fyrsta áætlunarflug Icelandair til Tenerife
Icelandair flaug í morgun til Tenerife með Boeing 737 MAX þotu
Icelandair flaug í morgun sitt fyrsta áætlunarflug til Tenerife sem er nýr áfangastaður í leiðarkerfi félagsins.
Icelandair tilkynnti Tenerife sem nýjan áfangastað í október í fyrra og verður flogið einu sinni í viku
í maí en í júní verður flogið tvisvar til þrisvar í viku sem veltur á því hversu mikið verður búið að
draga úr áhrifunum af heimsfaraldrinum.
Flugið í morgun til Tenerife var flogið með Boeing 737 MAX þotunni „Mývatn“ og fór flugvélin í loftið kl. 9:01
og var lent á Tenerife klukkan 14:50. Brottför til baka heim til Íslands er kl. 15:50 og lending áætluð í Keflavík
klukkan 20:10.
Þetta er í fyrsta sinn sem Icelandair hefur reglubundið áætlunarflug til Tenerife en hingað til hefur félagið
eingöngu flogið til eyjunnar í leiguflugi.
„Í gegnum tíðina höfum við einungis flogið til Kanaríeyja í leiguflugi fyrir íslenskar ferðaskrifstofur. Við höfum hins vegar lengi horft til þess að bæta Tenerife við flugáætlun okkar enda vinsæll áfangastaður á meðal Íslendinga sem fellur vel að leiðakerfi Icelandair. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð síðan tilkynnt var um þessa viðbót," segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group í tilkynningu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.