flugfréttir
United fær þriðja ríkisstyrkinn
Flugvélar frá United Airlines á Newark-flugvellinum í Bandaríkjunum
United Airlines mun fá um 350 milljarða króna í styrki frá ríkisstjórn Bandaríkjanna á næstunni og er um að ræða þriðja styrkinn sem flugfélagið bandaríska fær frá því að heimsfaraldurinn hófst.
United Airlines mun nota styrkinn að mestu til þess að greiða laun til starfsmanna og komast hjá uppsögnum
að minnsta kosti fram til 30. september í haust.
Styrkurinn er hluti af launastyrkjaverkefni ríkisstjórnarinnar sem nefnist
Payroll Support Program og er styrkurinn ekki háður neinum takmörkunum að undanskildu að félagið nái
að halda úti lágmarksþjónustu með áætlunarflugi á milli helstu borga í leiðarkerfinu fram til 1. mars árið 2022.
United Airlines er eitt af þeim bandarísku flugfélögunum sem fékk að finna mest fyrir áhrifunum við
upphaf faraldursins þar sem að leiðarkerfi félagsins samanstendur að stórum hluta af langflugi til
fjarlægra áfangastaða.
United mun hefja flug til margra áfangastaða í leiðarkerfinu að nýju í sumar og á næstu mánuðum
og þar á meðal mun félagið fljúga til Keflavíkur í sumar bæði frá Chicago og frá Newark í New Jersey.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.