flugfréttir
Ákveða að hætta endanlega með A380 risaþoturnar
Airbus A380 risaþota frá Malaysia Airlines í flugtaki á Heathrow-flugvellinum í London
Malasíska flugfélagið Malaysian Airlines ætlar að hætta með allar Airbus A380 risaþoturnar en þetta er haft eftir Izham Ismail, framkvæmdarstjórra félagsins.
„Við erum meðvitaðir um það að það er mjög erfitt að selja Airbus A380 þoturnar en erum samt að leita allra leiða til að losa
okkur við þær. Eins og staðan er í dag þá sér stjórn flugfélagsins ekki fram á að risaþoturnar passi inn í framtíðaáætlanir félagsins“, segir Ismail.
Malaysian Airlines tók við fyrstu Airbus A380 risaþotunni árið 2012 og hefur félagið fengið sex risaþotur afhentar en eftir að félagið byrjaði
að fá Airbus A350 breiðþoturnar afhentar hefur félagið hægt og rólega skipt risaþotunum út.
Heimsfaraldurinn hefur hægt og rólega grafið undan tilvist risaþotnanna og hafa flugfélög á borð við Air France, Lufthansa,
Qatar Airways, Thai Airways og Etihad Airways öll tilkynnt að þau sjái ekki fram á að nota risaþoturnar aftur.
Hinsvegar hafa Singapore Airlines, British Airways og Qantas lýst því yfir að þau ætli að nota A380 risaþoturnar aftur
um leið og eftirspurn eftir flugi milli heimsálfa tekur við sér á ný.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.