flugfréttir
Tegel formlega afskráður sem flugvöllur
Tegel-flugvellinum í Berlín þann 21. maí árið 2017
Tegel-flugvöllurinn í Berlín hefur formlega verip sviptur titlinum sem flugvöllur og er ekki lengur skilgreindur sem slíkur en um hálft er liðið frá því að flugvöllurinn hætti að þjóna flugvélum í áætlunarflugi.
Það var þann 8. nóvember sl. sem að síðasta áætlunarflugið fór um Tegel-flugvöll en frá því hafa flugmenn geta haft þann möguleika á því
að lenda á Tegel ef nauðsyn krefur en sl. miðvikudag var sá kostur ekki lengur í boði og eru flugtök og lendingar ekki lengur heimilaðar
á flugvellinum.
Til stendur að gamla flugstöðvarbyggingin verði miðstöð fyrir hagnýt vísindi á vegum Beuth University háskólans auk þess sem til stendur að reisa um 5.000
timburhús í nýju svæði sem skipulagt er á flugvallarsvæðinu.
Rekstarleyfi flugvallarins er því í dag útrunnið og er flugvallarsvæðið því aðeins „yfirgefið“ svæði með byggingum, flugbrautum og akbrautum
líkt og Temeplhof-flugvöllurinn í Berlin sem er í aðeins 10 kílómetra fjarlægð suðaustur af Tegel-flugvellinum.
„Frá og með 5. maí er Tegel formlega ekki lengur flugvöllur og einnig er kemur að lögum og reglugerðum í fluginu“, segir í tilkynningu
frá flugvallarrekstraraðilanum Flughafen Berlin Brandenburg GmbH (FBB).
Tegel-flugvallarsvæðið verður þó ekki opið fyrir almenningi strax líkt og Tempelhof-flugvöllurinn sem í dag er orðin að almenningsgarði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.