flugfréttir

IATA varar við því að hækka flugvallargjöld á Spáni

- AENA boðar til hækkunar á flugvallargjöldum á 46 spænskum flugvöllum

10. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:05

Flugvöllurinn í borginni Vigo á Spáni

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa varað spænska flugvallarfyrirtækið AENA við því að grípa til þess ráðs að hækka flugvallargjöld en fyrirtækið hefur boðað hækkun á gjöldum á tæplega 50 flugvöllum á Spáni.

IATA segir að þetta gæti haft í för með sér mjög neikvæðar afleiðingar og hægt á bataferlinu eftir heimsfaraldurinn og þá segja samtökin að þetta geti einnig haft áhrif á fjölmörg störf.

AENA hefur sent umsókn til spænskra flugmálayfirvalda þar sem óskað er eftir leyfi til þess að hækka flugvallargjöld á 46 flugvöllum á Spáni um 5.5 prósent á næstu fimm árum og er það gert í þeim tilgangi að auka tekjurnar til þess að bæta fyrir þann fjárhagsskaða sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna heimsfaraldursins.

IATA telur hinsvegar að hækkunin eigi eftir að hafa neikvæð áhrif á þau flugfélög sem fljúga um spænska flugvelli - „Allur flugiðnaðurinn er í krísu og þurfa öll fyrirtæki í iðnaðinum að draga úr kostnaði og auka hagkvæmni til þess að ná sér aftur á strik“, segir Willie Walsh, formaður IATA, sem telur að AENA ætti frekar að lækka flugvallargjöld um 4% í stað þess að hækka þau.

Walsh hvetur spænsk flugmálayfirvöld til þess að hafna beiðni AENA og mælir með því að fyrirtækið vinni frekar með flugfélögum og komi til móts við þau með því að finna leið sem hentar báðum aðilum.

Spánn er mjög stór hluti af flugiðnaðinum í Evrópu þar sem þar er að finna fjölmarga vinsæla áfangastaði sem Evrópubúar sækja í en fjöldi flugleiða til Spánar hefur dregist saman úr 1.800 flugleiðum niður í 234 leiðir.

COVID-19 hefur haft þau áhrif að um 1.1 milljón stöðugilda og starfa í fluginu á Spáni hafa ýmisst glatast eða eru í hættu og þá hefur hlutfall ferðaiðnaðarins af efnahag Spánar dregist saman úr 12% niður í 4 prósent.

„Snöggur bati í ferðaiðnaðinum á Spáni er gríðarlega mikilvægur en hækkanir á gjöldum á eftir að hægja á bataferlinu og ætti AENA að hugsa dæmið til lengri tíma með hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi“, segir Willie Walsh.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga