flugfréttir

APS MCC námskeið kennt í fyrsta sinn á Íslandi

11. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:39

APS MCC er hannað til að brúa bilið á milli hins hefðbundna námskeiðs í áhafnasamstarfi (MCC) og þjálfunar til tegundarréttinda flugmanna

Nýlega skrifuðu Flugakademía Íslands og Focus Aero Solutions undir samstarfssamning um APS MCC (Airline Pilot Standard Multi-Crew Cooperation) námskeið. APS MCC námskeiðið verður haldið 31. maí næstkomandi og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

APS MCC er hannað til að brúa bilið á milli hins hefðbundna námskeiðs í áhafnasamstarfi (MCC) og þjálfunar til tegundarréttinda flugmanna. Á námskeiðinu læra nemendur um ýmsa mikilvæga þætti flugmannsstarfsins í alþjóðlegu umhverfi s.s. færni í samskiptum, samvinnu, ákvarðanatöku og leiðtogahæfni.

Nemendur læra að leysa hin ýmsu vandamál með því að nýta sér reynslu og þekkingu samstarfsfólksins, þekkja lagaumhverfið, starfsaðferðir og að beita sinni þekkingu í þessu flókna vinnuumhverfi.

Nemendur betur undirbúnir fyrir umhverfi fjölstjórnarflugvéla

Hugmyndin um APS MCC varð til þegar ljóst varð að of margir nýútskrifaðir flugmenn með atvinnuflugmannsskírteini sem lokið höfðu hinu hefðbundna námskeiði í áhafnasamstarfi, voru ekki að komast í gegnum ráðningarferli evrópskra flugfélaga. Með því að bæta við kennslu í flughermi með þessu nýja námskeiði, býr það nemandann mun betur undir það að vinna í því umhverfi sem fjölstjórnarflugvél krefst umfram það sem hið hefðbundna áhafnasamstarf gerir. Það námskeið kennir flugnemum auðvitað undirstöðuatriðin, en APS MCC bætir talsvert ofan á það og býr flugnema mun betur undir þetta ferli.

Fram kemur hjá Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) að APS MCC sameinar hið hefðbundna námsskeið í áhafnasamstarfi og námi til þotuflugs (Jet Orientation Course – JOC), en það síðarnefnda er ekki til í regluverki stofnunarinnar. APS MCC námskeiðið kynnir nýútskrifuðum flugmönnum vel fyrir vinnuumhverfi flugfélaganna.

APS MCC hefst með 5 daga kennslu í bóklegum fræðum áður en nemendur halda í fyrri hluta verklegrar þjálfunar í Alsim ALX flughermi skólans. Seinni hluti verklegrar þjálfunar fer svo fram í Boeing 757/767 flughermi.

Focus Aero Solutions er íslenskt fyrirtæki með íslenskt kennsluleyfi frá Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) og býður uppá þjálfun fyrir bæði flugfélög og flugskóla. Markmið Focus Aero Solutions í samvinnu við Flugakademíu Íslands með þessu námsskeiði er að auka verulega líkurnar á því að umsækjendur komist í gegnum ráðningarferli flugfélaganna.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Davíð Brá Unnarsson, skólastjóra Flugakademíu Íslands, fyrir skráningar og nánari upplýsingar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga