flugfréttir

Horizon Air og SkyWest Panta 17 þotur frá Embraer

14. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:01

Embraer E175 þota frá Alaska Airlines

Flugfélögin Horizon Air og SkyWest Airlines hafa lagt inn pöntun til Embraer flugvélaverksmiðjanna í 17 nýjar farþegaþotur af gerðinni Embraer E175.

Þoturnar verða reknar undir merkjum Alaska Airlines en Horizon Air, sem er dótturfélag Alaska Air Group, hefur breytt kauprétti í níu Embraer E175 þotur í staðfesta pöntun á meðan SkyWest Airlines hefur lagt inn nýja pöntun í átta þotur.

Afhendingarnar á þotunum sautján hefjast árið 2022 en með pöntuninni mun Horizon Air hafa 42 þotur í flotanum af þessari gerð á með Embraer E175 floti SkyWest fer úr 32 þotum upp í 40 þotur.

Í dag eru 588 þotur af gerðinni Embraer E175 í umferð í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó og í Mið-Ameríku en þotur frá Embraer í Norður-Ameríku tilheyra 85% af þeim þotum sem tilheyra flokki farþegaflugvéla sem koma með sæti fyrir 70 til 90 farþega.

Alaska Airlines hefur sífellt verið að fjölga Embraer E175 þotunum frá því árið 2019 og í dag er þoturnar þær flugvélategundir sem hafa flestar brottfarir í leiðarkerfi Alaska Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga