flugfréttir
Fyrstu þrjár þotur PLAY voru áður í flota Interjet í Mexíkó
- XA-JIL skráð sem TF-AEW og XA-NEO og XA-JOE næstar á TF-skráningu
TF-AEW í litum Interjet en þotan verður á næstunni máluð í litum PLAY
Nýja íslenska flugfélagið PLAY hefur fengið úthlutað flugrekstarleyfi frá Samgöngustofu og þá hefur félagið einnig tekið við sinni fyrstu flugvél í flotanum sem er af gerðinni Airbus A321neo.
Flugvélin ber skráninguna TF-AEW og er von á þotunni til landsins á næstu dögum en þotan er tekin á leigu frá
flugvélaleigunni AerCap en eigandi vélarinnar er fyrirtækið Rhodium Funding Limited.
TF-AEW er í dag staðsett í Houston í Texas í Bandaríkjunum en þotan er í augnablikinu í litum mexíkóska flugfélagsins
Interjet þar sem hún var áður í rekstri en á næstunni verður hún máluð í litum PLAY áður en henni verður flogið til landsins.
Allar þoturnar smíðaðar árið 2018
Allar þoturnar þjár, sem PLAY, mun taka í notkun fyrir fyrstu áætlunarflugin, koma frá mexíkóska lágfargjaldarfélaginu Interjet
en þoturnar voru áður skráðar sem XA-JOE, XA-NEO og XA-JIL og voru allar þoturnar smíðaðar árið 2018.
Fyrsta þotan, TF-AEW, var áður skráð sem XA-JIL, en fyrir um ári síðan var þotan tekin úr notkun og henni flogið til
Goodyear-flugvallarins í Phoenix í Arizona í geymslu líkt og mörgum öðrum þotum vegna heimsfaraldursins.
Flugvélaleigan AerCap skráði þotuna aftur á bandaríska skráningu sem N88AE en þotunni var flogið til Houston þann 12. maí
síðastliðinn.
XA-JOE var tekin úr notkun hjá Interjet þann 24. febrúar árið 2020 og XA-NEO þann 28. mars og voru þoturnar tvær einnig ferjaðar til Goodyear-flugvallarins líkt og XA-JIL en hinar tvær bíða þess að fá íslenskra skráningu líkt og TF-AEW.
PLAY stefnir á að vera komið með tvær aðrar Airbus-þotur á næstu dögum áður en félagið byrjar að hefja áætlunarflug en
fyrsti áfangastaður félagsins verður London og verður flogið á Stansted-flugvöllinn en Stansted er flugvöllur sem Íslendingar
þekkja vel alveg frá því að flugfélagið Go flaug til Íslands í kringum aldamótin og svo einnig hóf Iceland Express sitt fyrsta flug
til Stansted auk Kaupmannahafnar árið 2002.
PLAY hefur meðal annars tryggt sér afgreiðslupláss og lendingarleyfi á Gatwick-flugvellinum auk flugvallarins í Dublin
en stefnt er á að hefja flug til London Stansted þann 24. júní næstkomandi.
Þá áætlar PLAY að hefja einnig áætlunarflug til Barcelona, Tenerife, Alicante, Berlín, Kaupmannahafnar, París og til Amsterdam.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.