flugfréttir
Fá grænt ljós til þess að enda gjaldþrotavernd
- Allir kröfuhafar styðja nýja fjárhagsáætlun Norwegian
Hluti af flugflota Norwegian kyrrsettur á Gardermoen-flugvellinum í Osló í fyrra
Norska flugfélagið Norwegian segir að félagið hafi ekki borist nein andmæli gegn endurreisnaráætlun sinni á sama tíma og gjaldþrotavernd félagsins fer að taka enda sem þýðir að Norwegian getur hafið áætlunarflug að fullum krafti fyrir lok þessa mánaðar.
Dómstóll hefur lýst því yfir að ný fjárhagsáætlun sé því með þessu staðfest og mun gjaldþrotavernd félagsins taka enda
þann 26. maí næstkomandi og eru allir kröfuhafar og lánadrottnar fylgjandi fjárhagsáætluninni.
Norwegian sótti um gjaldþrotavernd bæði fyrir dómstólum á Írlandi og í Noregi í vetur en til þess að koma til móts
við nýju fjárhagsáætlunina verður Norwegian að safna nýju fé inn í reksturinn með aðkomu fjárfesta eða með öðrum hætti.
Norwegian fékk samþykki fyrir því að gera nýja áætlun er varðar greiðslur á skuldum til lánadrottna sem var samþykkt í apríl og stefnir félagið á að
safna nýju fé inn í reksturinn upp á 89 milljarða króna með því skilyrði að kröfuhafar eignist 75% hlut í félaginu.
Norwegian mun hefja flugrekstur með 51 þotu en af þeim mun flugfélagið eiga fjórar þotur á meðan 44 þotur
eru teknar á leigu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.