flugfréttir
JetBlue hefur sölu á flugmiðum til London Heathrow
JetBlue stefnir á fyrsta flugið yfir Atlantshafið til London þann 11. ágúst í sumar
Bandaríska flugfélagið JetBlue hefur hafið sölu á farmiðum yfir Atlantshafið frá Bandaríkjunum til London og er félagið með því tilbúið að hefja áætlunarflug til Evrópu.
JetBlue, sem var stofnað fyrir 22 árum síðan, hefur hingað til flogið áætlunarflug innan Norður- og Suðu-Ameríku
og verður því brotið blað í sögu félagsins þegar félagið flýgur sitt fyrsta flug til Evrópu en félagið tryggði sér í vor
lendingarpláss á Heathrow-flugvellinum í London.
Fyrsta flugið yfir Atlantshafið er áætlað þann 11. ágúst í sumar og verður flogið á London Heathrow frá JFK-flugvellinum
í New York og mánuði síðar hefst áætlunarflug frá New York til Gatwick-flugvallarins í London.
Þá stefnir JetBlue á að hefja flug einnig til London frá Boston og er gert er ráð fyrir að það flug hefjist þó ekki fyrr en sumarið
2022 þegar félagið fær fyrstu Airbus A321LR þoturnar afhentar.
Flugi til London frá New York verður næturflug og er brottför áætluð rétt fyrir klukkan 22:00 að austurstrandartíma
og lending áætluð á Heathrow-flugvellinum klukkan 10 um morguninn.
Viðsnúningstíminn verður um 8 klukkustundir og er brottför til baka frá London áætluð klukkan 18:10 og verður lent í New York klukkan 21:35.
JetBlue hefur í augnablikinu aðeins tímabundið leyfi til að fljúga til London Heathrow og gilda lendingarplássin til
30. október en félagið vinnur að því að fá frekari pláss á Heathrow eftir þann tíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.