flugfréttir

MAX vélar Icelandair ná til Orlando og Seattle

- 737 MAX vélarnar nýtast félaginu enn betur en talið var með meiri drægni

20. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:37

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, er gesturinn í 30. þætti Flugvarpsins

Icelandair er að trekkja sína flugstarfsemi í gang á ný á næstunni en félagið er til að mynda að fjölga flugferðum hratt og bæta við starfsfólki því eftirspurn eftir flugi er að aukast.

Af þessu tilefni er rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair Group, sem er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins þar sem Jóhannes Bjarni ræðir við Boga um það sem framundan er hjá flugfélaginu, stöðu félagsins og sóknarfærin framundan.

Fyrir liggur að Boeing 737 MAX vélarnar eigi eftir að nýtast enn betur en talið var þegar vélarnar voru keyptar en flugdrægni þeirra fer fram úr því sem framleiðandinn tryggði og það þýðir að Icelandair getur nýtt vélina á fjarlægari staði en upphaflega var áætlað.

Bogi Nils forstjóri Icelandair segir í viðtali við Flugvarpið, hlaðvarp um flugmál, að þessi staðreynd geri það líklegra en ekki að MAX flugvélunum muni fjölga hjá félaginu í framtíðinni en Boeing 737 MAX 9 hefur sem dæmi verið notuð milli Keflavíkur og Seattle síðustu daga.

Bogi segir flotamál félagins til framtíðar vera til skoðunar en hagkvæmni MAX vélanna núna opnar möguleika á áfangastöðum og tíðni sem ekki var arðbært með eldri vélum.

Rætt er við Boga Nils í Flugvarpinu um viðspyrnu félagsins framundan, samkeppnina í fluginu, innanlandsflugið, samkeppnina í fluginu, tækifærin með breiðþotum í fraktflugi, Loftleiði og margt fleira.

Hægt er að nálgast nýjasta þáttinn á Apple podcast eða Spotify.
https://open.spotify.com/show/7h0K7eqiiNRxKBoz6m9iLt







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga