flugfréttir
Samsetning hafin á fyrstu Airbus A321XLR þotunni
Frá verksmiðjum Airbus í Hamborg
Airbus hefur hafist handa við smíði á fyrsta Airbus A321XLR þotunni en samsetningin hófst eftir að aftari miðjueldsneytistankurinn var afhentur til verksmiðja Airbus í Hamborg á dögunum.
Fyrsta A321XLR þotan er sett saman í sérstrakri verksmiðjuálmu sem er aðskilin aðalverksmiðjunni þar sem aðrar
A320 þotur eru framleiddar.
Martin Schnoor, yfirmaður yfir Airbus A321XLR verkefninu, segir að allt
sé klárt til þess að hefja framleiðslu á fullu á fyrstu A321XLR tilraunaþotunni alveg frá samsetningu að fyrsta fluginu.
Airbus A321XLR verður langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra
sem koma með einum gangi og stendur til að afhendingar hefjist árið 2023 en meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað A321XLR eru American Airlines, Frontier Airlines, jetBLue, United Airlines, Wizz Air, Air Arabia auk
fleiri flugfélaga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.