flugfréttir
Íhuga að panta yfir 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10
Ryanair íhugar að panta yfir 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10
Ryanair á í viðræðum við Boeing um pöntun á yfir 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 10 sem félagið myndi fá afhentar eftir árið 2026 en þá gerir Ryanair ráð fyrir að vera búið að fá allar Boeing 737 MAX 200 þoturnar afhentar.
Ef Ryanair pantar Boeing 737 MAX 10 vélarnar þá myndu þær koma með sætum fyrir 230 farþega en Michael O´Leary, framkvæmdastjóri
félagsins, segir að Ryanair eigi eftir að stækka enn hraðar á næstu fjórum til fimm árum eftir faraldurinn og meðal annars
vegna stöðunnar á mörkuðum þar sem önnur flugfélög hafa dregið sig til hlés.
Í dag á Ryanair von á 230 Boeing 737 MAX þotum en félagið á enn eftir að fá þá fyrstu afhenta. Lágfargjaldafélagið írska segir að 737 MAX 200 vélarnar verði allt að 16 prósent sparneytnari en núverandi þotur í flotanum sem eru af gerðinni Boeing 737-800.
Með 230 sætum myndi Boeing 737 MAX 10 gera Ryanair kleift að keppa við Airbus A321neo þotur Wizz Air sem koma með sæti fyrir 239 farþega en félagið
hefur fengið 23 þotur afhentar af þeirri gerð og á von á 212 til viðbótar.
Flugfloti Ryanair Group, sem samanstendur af Ryanair, Ryanair UK, Buzz, Malta Air og Lauda Europe, telur 451 flugvél en af þeim er 341 þota í notkun
í dag á meðan 110 þotur eru í geymslu vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.