flugfréttir
Focus Aero Solutions í samstarf við Green Africa Airways
ATR-flugvélar í flota Green Africa Airways
Focus Aero Solutions skrifaði undir samstarfssamning við Green Africa Airways um að annast umsjón ráðninga flugmanna á ATR skrúfuþotur flugfélagsins í byrjun maí.
Green Africa Airways er nýtt lágfargjaldaflugfélag ‚value carrier‘ sem hyggst hefja rekstur út frá Lagos í Nígeríu í lok júní næstkomandi. Ljóst er að áhafnaþörf flugfélagsins verður gríðarleg á næstu misserum þar sem félagið er með metnaðarfull og stórtæk áform um stækkun á leiðarkerfi sínu.
Green Africa Airways er nú þegar búið að ganga frá kaupum á ATR-72-600 skrúfuþotum og hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við Airbus um pöntun á rúmlega fimmtíu Airbus A220-300, stærsta pöntun Airbus til þessa frá flugfélagi staðsett í Afríku. Þar að auki eru samningaviðræður við Boeing um kaup á 737-8 á byrjunarstigi.
Merki Focus Aero Solutions
Í Nígeríu búa rúmlega 200 milljónir manna og greina menn mikil tækifæri á markaði fyrir öflugt lágfargjaldaflugfélag. Í stjórn Green Africa Airways eru reyndir stjórnendur úr flugheiminum á borð við Tom Horton, fyrrum stjórnarformann og forstjóra American Airlines og William Shaw, forstjóra Interjet.
Focus Aero Solutions er íslenskt fyrirtæki með íslenskt kennsluleyfi gefið út af Samgöngustofu í samræmi við sam-evrópskar reglur Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) og býður upp á þjálfun fyrir flugfélög jafnt sem flugskóla. Focus Aero Solutions er í eigu flugstjóranna Arnars Jökuls Agnarssonar, Arnars Más Baldvinssonar og Kára Kárasonar.
Focus Aero Solutions hóf nýlega samstarf við Flugakademíu Íslands um svokallað APS MCC námskeið sem byrjar í lok maí. Námskeiðið er nýtt af nálinni og hannað til að brúa bilið á milli hins hefðbundna námskeiðs í áhafnasamstarfi (MCC) og þjálfunar til tegundarréttinda flugmanna.
Markmið Focus Aero Solutions í samvinnu við Flugakademíu Íslands með þessu námskeiði er að auka verulega líkurnar á því að umsækjendur komist í gegnum ráðningarferli flugfélaganna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.