flugfréttir
Belavia verður bannað að fljúga til Evrópu
- Evrópa leggur drög að viðskiptaþvingunum á Hvíta-Rússland
Embraer E175 farþegaþota frá Belavia
Evrópusambandið stefnir á að banna allt áætlunarflugi á vegum Belavia, ríkisflugfélags Hvíta-Rússlands, til Evrópu auk þess að setja á höft við flugi á vegum félagsins í evrópskri lofhelgi en fram kemur að evrópsk stjórnvöld sé að hraða ferlinu við að innleiða bannið.
Einnig stendur til að setja á viðskiptaþvinganir á Hvíta-Rússland og er talið að sendiherrar allra
27 aðildarríkja ESB muni samþykkja viðskiptabann síðar í þessum mánuði.
Höftin munu einnig ná til starfsemi fyrirtækja í flugiðnaði í landinu og hefta samstarf og tengsl
við Evrópu og þá getur bannið einnig haft áhrif á starfsemi fraktflugfélagsins Transiaviaexport Airlines
sem er skráð í höfuðborginni Minsk.
Aðdragandinn er atvik sem átti sér stað er farþegaþota frá Ryanair var þvinguð til þess að lenda í
Hvíta-Rússlandi þann 23. maí sl. á leið sinni frá Aþenu til Vilnius í þeim tilgangi að hægt væri
að handtaka farþega um borð sem reyndist vera blaðamaðurinn og aðgerðarsinninn Roman Protasevich.
Ekki er vitað hvort að bannið muni hafa áhrif á leigusamninga á flugvélum á vegum Belavia en
flugfélagið er með þotur á leigu frá evrópskum flugvélaleigum á borð við Nordic Aviation Capital í
Danmörku og AerCap á Írlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.