flugfréttir
Setja á uppboð ellefu Airbus A321 þotur
Airbus A321 þota frá Vietnam Airlines
Flugfélagið Vietnam Airlines stefnir á að selja ellefu farþegaþotur af gerðinni Airbus A321 sem seldar verða á uppboði.
Í tilkynningu á vefsíðu víetnamska flugfélagsins kemur fram að áhugasamir get skilað inn tilboði
til 29. júní. Ekki kemur fram hver ástæðan er fyrir því að flugfélagið sé að setja þoturnar á uppboð
en talið er að Vietnam Airlines sé að reyna að styrkja stöðu sína vegna heimsfaraldursins.
Með sölunni getur Vietnam Airlines styrkt lausafjárstöðu sína umtalsverk en taprekstur flugfélagsins eftir fyrsta ársfjórðung þessa árs
nam 26 milljörðum króna.
Flugfloti Vietnam Airlines telur í dag um 100 flugvélar og er meðalaldur vélanna um 6.7 ár en um
helmingur flotans er í geymslu vegna dræmrar eftirspurnar eftir farþegaflugi.
Um helmingur flotans eru þotur af gerðinni Airbus A321 en félagið hefur 49 þotur af þeirri gerð en þá samanstendur flotinn
einnig af fimmtán Boeing 787 þotum, fjórtán Airbus A350 breiðþotum og tveimur ATR 72 skrúfuþotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.