flugfréttir
Þotu snúið við með farþega sem fór ekki í gegnum öryggisleit
- Notaði gamlan starfsmannapassa til að sleppa við biðröð í vopnaleit
Airbus A321 þota frá American Airlines
Farþegaþota frá American Airlines þurfti í gær að snúa við aftur til brottfararstaðar eftir að tilkynning barst um að einn farþegi hafði ekki farið í gegnum öryggisleit á flugvellinum áður en hann fór um borð í flugvélina.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A321, var á leiðinni frá Charlotte í Norður-Karólínu til Cancun í Mexíkó þegar flugmennirnir fengu skilaboð
þess efnis að um borð í flugvélinni væri einn farþegi sem hafði ekki farið í gegnum öryggisleit fyrir brottför.
Fram kemur að þotan hafi verið í flugtaksklifri og var hún í nágrenni Charlotte/Douglas flugvallarins þegar flugmennirnir snéru við og lentu
aftur skömu síðar en lögreglan í Charlotte fór um borð og handtók farþegann sem sat í fremstu sætaröð á fyrsta farrými.
Farþeginn, sem er fertugur, hafði komist framhjá öryggisleitinni með því að fara út um starfsmannainngang og fór hann þaðan út á flughlaðið
og tókst með því að ganga beint um borð í flugvélina.
Fram kemur að farþeginn, sem heitir Narada Wilson, var áður starfsmaður flugfélagsins Piedmont Airlines og hafði hann notað
aðgangspassa sem hann hafði enn í fórum sínum til að komast út um dyrnar til þess að sleppa við að bíða í röðinni við öryggisleitina.
Starfsmaður á flugvellinum kom auga á Wilson þar sem hann notaði aðgangspassann til þess að komast út um dyrnar og lét hann yfirvöld á flugvellinum
vita tafarlaust en hinsvegar var of seint að stöðva þotuna þar sem það var það stutt í brottför.
Charlotte/Douglas flugvöllurinn hefur verið töluvert í fréttum að undanförnu vestanhafs þar sem mjög langar biðraðir hafa myndast reglulega
við öryggisleitina og hafa fjölmargir farþegar kvartað undan röðinni.
Raðirnar hafa verið það langar að farþegar hafa til að mynda misst af flugi og sl. laugardag voru hundruðir farþega sem misstu af flugi þar sem flugvélin
var farin loksins þegar þeir farþegar voru komnir í gegn um leitina en fram kemur að ekki hafi verið nægilega margir starfsmenn í vopnaleitinni
þann daginn.
American Airlines hefur ráðlagt farþegum að mæta 2 til 3 tímum fyrir brottför á Charlotte/Douglas flugvöllinn en fram kemur að ástandið
sé svipað á fjölmörgum flugvöllum í Bandaríkjunum þar sem farþegum hefur fjölgað mikið að undanförnu eftir heimsfaraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.