flugfréttir
Íhuga að panta allt að 150 þotur frá Boeing eða Airbus
Flugvélar í flota United Airlines á O´Hare-flugvellinum í Chicago
Bandaríska flugfélagið United Airlines segist eiga í viðræðum bæði við Boeing og Airbus um stóra pöntun í yfir 100 þotur þar sem félagið stefnir á að stækka flugflotann sinn enn frekar á næstu árum.
United Airlines segir að verið sé að undirbúa pöntun í allt að 150 þotur og koma bæði Boeing 737 MAX 10 þoturnar til greina og A321neo frá Airbus.
Félagið stefnir á að færa út kvíarnar á næstunni þar sem heimsfaraldurinn er senn á enda
og segir félagið að margar meðalstórar þotur í flotanum séu komnar til ára sinna sem
þarf að skipta út fyrir nýjum flugvélum.
United Airlines hefur þegar fengið þrjátíu Boeing 737 MAX 9 þotur afhentar og á félagið
von á 189 MAX þotum á næstunni en af þeim eru 40 af gerðinni 737 MAX 8, fjörtíu og níu
af gerðinni Boeing 737 MAX 9 og þá á félagið von á 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 19.
Með fyrirhugaðri pöntun í enn fleiri þotur gæti heildarfjöldi pantanna því farið upp í 338 þotur
ef United ákveður að panta fleiri MAX þotur í stað Airbus A321neo.
Heildarfjöldi flugflota United Airlines er 827 flugvélar og er meðalaldur þeirra 16.3 ár en af þeim eru 191 Airbus-þotur og 636 þotur frá Boeing.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.