flugfréttir
„Pólitískar deilur eiga ekki að bitna á fluginu“
- Segja aðgerðir Evrópulanda vera bit án tanna
Farþegaþota fá hvítrússneska flugfélaginu Belavia á flugvellinum í Minsk
Samgönguráðuneyti Hvíta-Rússlands fordæmir aðgerðir Evrópuríkja sem hafa ákveðið að sniðganga og setja höft á flugsamgöngur á milli Hvíta-Rússlands og Evrópu sem hefndaraðgerðir eftir að farþegaþota frá Ryanair var tilneydd til þess að lenda í Minsk þann 23. maí sl. á leið sinni frá Aþenu til Vilnius.
Artyom Sikorsky, yfirmaður yfir flugmálum innan samgönguráðuneytis Hvíta-Rússlands, segir að pólitískar
deilur eigi ekki að bitna á flugiðnaðinum og kallar hann aðgerðir Evrópuríkja „tannlaust bit“.
„Þessar aðgerðir eru óþægilegar og andstyggilegar en ekki sársaukafullar“, sagði Sikorsky í viðtali í hvítrússneska ríkissjónvarpinu og bendir hann á að aðgerðirnar séu að bitna á venjulegu fólki og
ekki bara í Hvíta-Rússlandi heldur fólki frá ýmsum löndum sem eru að ferðast með flugi.
Sikorsky segir að hann efist um að Evrópusambandið hafi spáð í þeim áhrifum sem að aðgerðirnar
eru að hafa á flugið og segir hann að það sé mjög rangt að láta deilur í stjórnmálum bitna á farþegaflugi.
Þá hefur ríkisstjórn Japans einnig ákveðið að feta í fótspor Evrópulanda með því að láta
japönsk flugfélög sniðganga lofthelgina yfir Hvíta-Rússlandi en japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways)
hefur flogið yfir Hvíta-Rússland á leið sinni frá Tókýó til áfangastaða í Evrópu en samkeppnisflugfélagið
Japan Airlines segir að flugleiðir félagsins til Evrópu hafi ekki legið yfir Hvíta-Rússland.
„Við fordæmum eindregið að flugvél í áætlunarflugi hafi verið neydd til þess að lenda til þess að hægt væri
að handtaka tiltekinn farþega um borð af hvítrússneskum stjórnvöldum og við förum einnig fram á að
þessi blaðamaður verður leystur úr haldi tafarlaust“, segir í yfirlýsingu frá japönskum stjórnvöldum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.